Börkur Smári Kristinsson Börkur Smári Kristinsson

Hvað er í boði 2026?

Flugukast.is er að hefja 15 starfsárið sitt og við erum ótrúlega þakklát og stolt af vegferðinni hingað til. Á þessu ári ætlum við að halda uppteknum hætti og bjóða upp á hágæða námskeið í flugukasti fyrir byrjendur og lengra komna. Skráningar munu fara fram hér á flugukast.is og verða námskeið haldin á Miklatúni og í Breiðholti eins og undanfarin ár en á sumum námskeiðum munum við fara upp að vötnunum á höfuðborgarsvæðinu. Á það einna helst við tvíhendu- og Speykastnámskeiðin okkar.

Námskeiðin okkar hefjast að venju á sumardaginn fyrsta og munum við bæði vera með kennslu um helgar og seinnipart á virkum dögum, eftir vinnu. Við hvetjum ykkur til að skrá ykkur sem fyrst þar sem plássin eru fljót að fara þegar vorið fer að láta á sér kræla.

Hlökkum til að hitta ykkur í sumar!

Read More