Námskeið júní, júlí og ágúst 2026
Flugukastnámskeiðin okkar fóru af stað með krafti í apríl og maí og erum við þakklátir öllum sem komu á námskeið í vor. Í sumar verður minna framboð af skipulögðum námskeiðum en þau námskeið sem eru í boði verða auglýst á síðunni okkar hverju sinni. Ef engin námskeið eru í boði má alltaf senda fyrirspurn á info@flugukast.is og við gerum okkar allra besta að koma til móts við þá sem vilja læra, annaðhvort með einkakennslu eða skipuleggjum hópnámskeið ef nægilegur fjöldi áhugasamra er til staðar.
Gleðilegt veiðisumar! :)