Börkur Smári Kristinsson

Hefur veitt allt sitt líf en fékk fyrst að prófa flugustöng þegar hann var 15 ára gamall. Hann féll strax fyrir fluguveiðinni og sökkti sér í hana af fullum krafti. Fljótlega fór hann að kenna ungu kynslóðinni að veiða og fór í framhaldinu á réttindanámskeið hjá Fly Fishers International árið 2011 sem opnaði nýjan heim fyrir honum. Börkur hefur síðan þá kennt flugukast á hverju sumri á vegum flugukast.is þar sem hann leggur áherslu á að fólk upplifi ánægju og gleði þess að geta kastað flugu á einfaldan en áhrifaríkan máta. Fyrir nokkrum árum gerði hann stutta þáttaröð um flugukasttækni þar sem farið var yfir lykilatriði flugukasta – að kasta í vindi, veltikasta og ýmislegt fleira. Þessir þættir eru aðgengilegir á netinu og hægt er að sjá þá alla á forsíðu flugukast.is. Þegar Börkur er ekki að kenna, veiða eða leiðsegja þá starfar hann sem sérfræðingur í nýsköpun, hjá Orkuveitunni, keppir um íslands- og bikarmeistaratitla í fjallahjólreiðum og reynir að hafa ofan af fyrir þremur ærslamiklum börnum.

Man in waders holding a large fish in shallow water with a distant shoreline in the background.
Group of six people outdoors, smiling and giving thumbs up, standing on a grassy field with houses in the background.

Björn Gunnarsson

Hefur veitt frá unga aldri og stundað veiðileiðsögn í mörg ár.
Hann lauk kastkennarprófi frá Fly Fishers International vorið 2016 og hefur sú kunnátta nýst sérstaklega vel á árbakkanum og margir veiðimenn notið góðs af.

Ásamt eiginkonu sinni, Höllu Sólveigu, rekur Björn litla ferðaskrifstofu, rivernorth.is sem að sjálfsögðu snýst um veiði.

Á veturna stundar Björn annars konar kennslu, en þá kennir hann á klassískan gítar. Árið 2000 lauk hann MM prófi frá Hartt School of Music, University of Hartford, í Bandaríkjunum. Eftir 5 ára búsetu þar lagði Björn stund á gítarnám á Spáni í eitt og hálft ár. Í dag er Björn búsettur í 101 Reykjavík ásamt eiginkonu, þremur börnum og einum ketti. Hann er deildarstjóri gítar – og hörpudeildar í Tónlistarskóla Kópavogs og kennir auk þess í Tónmenntaskólanum í Reykjavík.

Smiling man in outdoor gear holding a large brown trout near a river with green hills in the background.