top of page

BÖRKUR SMÁRI KRISTINSSON

Stofnandi flugukast.is

Hefur veitt allt sitt líf en fékk fyrst að prófa flugustöng þegar hann var 15 ára gamall. Hann féll strax fyrir fluguveiðinni og sökkti sér í hana af fullum krafti. Fljótlega fór hann að kenna ungu kynslóðinni að veiða og fór í framhaldinu á réttindanámskeið hjá Fly Fishers International árið 2011 sem opnaði nýjan heim fyrir honum. Börkur hefur síðan þá kennt flugukast á hverju sumri á vegum flugukast.is þar sem hann leggur áherslu á að fólk upplifi ánægju og gleði þess að geta kastað flugu á einfaldan en áhrifaríkan máta. Fyrir nokkrum árum gerði hann stutta þáttaröð um flugukasttækni þar sem farið var yfir lykilatriði flugukasta – að kasta í vindi, veltikasta og ýmislegt fleira. Þessir þættir eru aðgengilegir á netinu og hægt er að sjá þá alla á forsíðu flugukast.is. Þegar Börkur er ekki að kenna, veiða eða leiðsegja þá starfar hann sem umhverfisverkfræðingur hjá Pure North Recycling, rennir sér niður fjallshlíðar á fjallahjóli og reynir að hafa ofan af þremur ærslamiklum börnum.

103733924_847505792406219_72290126604646
Um okkur: About Me
20180706-IMG_2640.jpeg

BJÖRN GUNNARSSON

Hefur veitt frá unga aldri og stundað veiðileiðsögn í mörg ár.
Hann lauk kastkennarprófi frá Fly Fishers International vorið 2016 og hefur sú kunnátta nýst sérstaklega vel á árbakkanum og margir veiðimenn notið góðs af.

Ásamt eiginkonu sinni, Höllu Sólveigu, rekur Björn litla ferðaskrifstofu, rivernorth.is sem að sjálfsögðu snýst um veiði.

Á veturna stundar Björn annars konar kennslu, en þá kennir hann á klassískan gítar. Árið 2000 lauk hann MM prófi frá Hartt School of Music, University of Hartford, í Bandaríkjunum. Eftir 5 ára búsetu þar lagði Björn stund á gítarnám á Spáni í eitt og hálft ár. Í dag er Björn búsettur í 101 Reykjavík ásamt eiginkonu, þremur börnum og einum ketti. Hann er deildarstjóri gítar – og hörpudeildar í Tónlistarskóla Kópavogs og kennir auk þess í Tónmenntaskólanum í Reykjavík.

Um okkur: About Me

HILMAR JÓNSSON

Hefur stundað veiðiskap frá unga aldri. Eftir að hann kynntist fluguveiði sem ungur drengur var fræi sáð sem hefur vaxið og dafnað síðan. Hilmar lauk fyrstur Íslendinga kastkennaraprófi frá Fly Fishers International árið 2008. Síðan þá hefur flugukastkennslan verið hans helsta áhugamál.
Hilmar hefur kennt víða um heim, m.a. á Englandi, Írlandi, Skotlandi, og Þýskalandi. Mest hefur hann kennt smærri hópum en hann hefur verið leiðbeinandi á sýningum eins og EWF í Þýskalandi. Auk þess að kenna fluguköst vinnur Hilmar sem leiðsögumaður við ýmsar ár hér á landi.

20181105-12963440_555430591304183_105519
Um okkur: About Me
bottom of page